Upphaf haustannar 2024

Undirbúningur fyrir skólastarfið á haustönn 2024 er í fullum gangi og við hlökkum til að sjá ykkur öll. Verið er að vinna stundatöflur nemenda, bókalisti er aðgengilegur á heimasíðu skólans og verður einnig aðgengilegur í INNU þegar stundatöflur opna.

Helstu dagsetningar framundan sem gott er að hafa í huga fyrir nemendur og forráðamenn:

Fimmtudagur 15. ágúst – Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar í INNU og opnað fyrir rafrænar töflubreytingar.

Fimmtudagur 15. ágúst kl. 10:00-12:00 – Móttaka nýnema (fæddir 2008) í bóknámi og grunndeild matvæla- og ferðagreina. Sjá nánar  bréf sem sent var til nýnema í júní. Nýnemar á starfsbraut mæta skv. upplýsingum frá starfsbraut.

Fimmtudagur 15. ágúst kl. 14:00-15:30 - Móttaka eldri nýnema í bók- og verknámi.

Mánudagur 19. ágúst – Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu í dagskóla.

Þriðjudagur 20. ágúst – Kennsla fellur niður. Heitavatnslaust verður í Kópavogi. Skrifstofa skólans verður opin og námsráðgjafar verða á staðnum.

Miðvikudagur 21. ágúst – Kennsla hefst kl. 12:30 en heitavatnslaust verður fram að þeim tíma. Skrifstofa skólans verður opin og námsráðgjafar verða á staðnum.

Miðvikudagur 21. ágúst – Lokað fyrir töflubreytingar kl. 16:00.

Fimmtudagur 22. ágúst kl. 13:00 – Matsveinanemar mæta í stofu V-205 í kynningu og staðlotu.

Mánudagur 26. ágúst kl.12:30-17:00 – Kennsla hefst í meistaranámi.

Mánudagur 26. ágúst kl. 17:00 – Skólasetning Leiðsöguskólans og kennsla hefst.

Þriðjudagur 27. ágúst kl. 17:00-18:30 – Foreldrafundur með forráðamönnum nýnema (fæddir 2008) í Sunnusal. Umsjónarkennarar verða í stofum með foreldrum sinna umsjónarnema.

Miðvikudagur 28. ágúst kl. 9:00-16:00 – Nýnemaferð.

Fimmtudagur 29. ágúst kl. 13:00 – Matartæknanemar mæta í stofu V-205 í kynningu og staðlotu.

Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna.