LSM-013 byggir á VKL-301 gr. 5 flæðirit
- Gert er ráð fyrir að þeir nemendur sem innritast hafi yfir eigin fartölvu/spjaldtölvu að ráða enda miðast kennsla við það.
- Í kennslustund skulu nemendur aðeins nota þau snjalltæki við vinnu sem tengist viðkomandi áfanga.
- Kennari stýrir vinnu í kennslustundum og stjórnar notkun á þessum búnaði eftir því sem við á. Kennari hefur leyfi til að banna alla notkun snjalltækja.
- Nemendum er bannað að lána öðrum aðgang sinn eða gefa upp notendanafn og lykilorð.
- Nemendur mega ekki sækja forrit út á netið og vista á neti skólans.
- Óheimilt er að setja forrit inn á vélar skólans.
- Nemendum er stranglega bannað að birta/senda óviðeigandi efni og skilaboð um samnemendur og starfsmenn skólans.
- Nemendur skulu ganga vel um allan tækjabúnað skólans.
- Ef nemendur fylgja ekki reglum skólans um notkun snjalltækja geta þeir átt á hættu að missa aðgang að tækjum skólans og neti skólans.
Brjóti nemandi reglur skólans um notkun snjalltækja fær hann viðvörun. Ítrekuð brot á skólareglum getur leitt til áminningar eða brottvísunar. Forráðamönnum ólögráða nemenda er gert viðvart svo þeir geti nýtt andmælarétt sinn, sbr. VNL-205.