Stundatöflur nemenda opna í Innu föstudaginn 13. ágúst kl 12:00.
16. águst verður opnað verður fyrir rafrænar töflubreytingar í Innu.
Nemendur hafa fram til 18. ágúst kl. 16:00 til að senda inn óskir um töflubreytingar. Athugið að ekki er hægt að óska eftir tilfærslu á milli hópa í áfanga og nemendur geta ekki óskað eftir að taka út áfanga sem þeir völdu sjálfir í áfangavalinu.
Leiðbeiningar fyrir töflubreytingar
Eftir að töflubreytingum lýkur verða allar töflubreytingaóskir afgreiddar eins fljótt og auðið er. Nemendur fá send skilaboð um leið og afgreiðsla hefur farið fram. Á meðan mæta nemendur í skólann samkvæmt stundatöflu.