Stöðupróf í pólsku

Stöðupróf í pólsku verður haldið í Kvennaskólanum í Reykjavík, mánudaginn 28. febrúar kl. 16:30. Prófið verður í aðalbyggingu skólans að Fríkirkjuvegi 9.
Mest geta nemendur fengið 20 ein. metnar, 15 ein. á 1. þrepi og 5 ein. á 2. þrepi.
Skráning fer fram á heimasíðu skólans ekki síðar en 23. febrúar.
Prófgjald er kr. 13.000 sem greiðist með því að leggja inn á reikning: 0513-26-14040, kt. 650276-0359. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu.
Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á gudnyrun@kvenno.is.
Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.