Stöðupróf í dönsku, ensku, spænsku og þýsku

Stöðupróf í dönsku, ensku, spænsku og þýsku verða haldin í Menntaskólanum í Kópavogi miðvikudaginn 21. ágúst kl. 9:00.  Stöðuprófin eru hugsuð fyrir nemendur sem hafa búið erlendis eða eru af erlendum uppruna og tala og rita dönsku, ensku, spænsku eða þýsku.

Skráning fer fram á netfangið mk@mk.is í síðasta lagi mánudaginn 19. ágúst kl. 16:00.

Prófgjald er 25.000 kr. sem greiða skal inn á reikning skólans um leið og skráning fer fram. Leggja skal inn á reikning skólans:  536 26 2155, kt. 631173-0399. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu og afrit af kvittuninni þarf að senda á mk@mk.is Próftakar þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.