Stöðupróf í dönsku, ensku, frönsku, spænsku og þýsku

Stöðupróf í dönsku, ensku, frönsku, spænsku og þýsku verða haldin í Menntaskólanum í Kópavogi þriðjudaginn 5. janúar kl. 15:00.  Vegna aðstæðna verða prófin að þessu sinni eingöngu fyrir þá nemendur sem eru í MK.  Stöðuprófin eru hugsuð fyrir nemendur sem hafa búið erlendis eða eru af erlendum uppruna og tala og rita dönsku, ensku, frönsku, spænsku eða þýsku.

Skráning fer fram á netfangið mk@mk.is  í síðasta lagi mánudaginn 4. janúar.

Prófgjald er 20.000 kr. sem greiða skal inn á reikning skólans: 536 26 2155, kt. 631173-0399. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu og afrit af kvittuninni þarf að senda á mk@mk.is  Próftakar þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.