Stöðupróf í bosnísku og serbnesku

Stöðupróf í bosnísku og serbnesku verður haldið í Menntaskólanum í Kópavogi fimmtudaginn 19. september kl. 08:30-10:30 í stofu S-303. Skráning er opin til þriðjudagisins 17. september kl. 16:00.

Skráning í stöðupróf

Prófgjald er 25.000 kr. sem greiða skal inn á reikning skólans um leið og skráning fer fram. Leggja skal inn á reikning skólans: 536 26 2155, kt. 631173-0399. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu og afrit af kvittuninni þarf að senda á mk@mk.is

Próftakar þurfa að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið. Prófið er á pappír (ekki í tölvu) og auk þess er munnlegur hluti.