Samningur undirritaður

Hótel og matvælaskólinn í MK og Landspítalinn skrifuðu í dag undir áframhaldandi samstarfssamning um þjálfun nema í matartæknanámi. Samstarf þessara aðila hefur varað í mörg ár og hefur verið ákaflega farsælt. Með samningi þessum er það tryggt að mataræknanemar fái pláss í verklegri kennslu á spítalanum og getur verknámið farið fram allt árið um kring.