Róbert komst í úrslit

Matreiðslunemanum Róbert Demirev gekk vel í Young Chef Olympiad keppninni sl. mánudag og er hann kominn í úrslit í Plate Trophy hluta keppninnar, en þar er keppt um hver hreppir 11.-20. sætið og hlýtur sérstök verðlaun. Um hádegisbilið á föstudaginn þarf hann að matreiða eftirrétt í beinni útsendingu og skila af sér kl. 14:00.

Á meðfylgjandi mynd er Róbert önnum kafinn við undirbúning ásamt aðstoðarmanni sínum, matreiðslunemanum Degi Rúnarssyni.

Við óskum þeim félögum áframhaldandi góðs gengis en streymi frá keppninni og ýmsar aðrar upplýsingar má finna á ycolympiad.com.