Rafrænar töflubreytingar

Opnað hefur verið fyrir rafrænar töflubreytingar í Innu (sjá leiðbeiningar hér) .  Nemendur hafa  fram til 6 janúar kl. 16:00 til að senda inn óskir um töflubreytingar. Athugið að ekki er hægt að óska eftir tilfærslu á milli hópa í áfanga og nemendur geta ekki óskað eftir að taka út áfanga sem þeir völdu sjálfir í áfangavalinu. Hér má finna lista yfir þá áfanga sem kenndir verða á vorönn 2021. 

 Þann 7. og 8. janúar verða allar töflubreytingaóskir afgreiddar. Nemendur fá send skilaboð um leið og afgreiðsla hefur farið fram.  Á meðan mæta nemendur í skólann samkvæmt stundatöflu.

Kennsla hefst skv. stundatöflu 5. janúar kl. 8:15.