Sævar Breki fundarstjóri
Fulltrúar flokka sem bjóða fram til Alþingis mæta í pallborðsumræður í Sunnusal á morgun kl. 10. Sævar Breki tónlistarmaður og áhrifavaldur stjórnar fundinum og nemendur munu geta borið upp spurningar til frambjóðenda nafnlaust á skjá ef þeir vilja. Þau sem hafa staðfest komu eru:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Vala Garðarsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn
Finnur Ricart Andrason fyrir Vinstri græn
Guðmundur Ari Sigurjónsson fyrir Samfylkinguna
Helga Þórðardóttir fyrir Flokk fólksins
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir fyrir Pírata
Sigmar Guðmundsson fyrir Viðreisn
Anton Sveinn McKee fyrir Miðflokkinn
Sósíalistar munu einnig senda fulltrúa.
Takið tímann frá og spyrjið frambjóðendur um það sem brennur á ykkur!