Mötuneyti nemenda

Í dag opnar mötuneytið fyrir nemendur. Nemendur sótthreinsa sjálfir borðin eftir sig og verða skólameistari og aðstoðarskólameistari á sveimi þessa viku til að aðstoða nemendur svo þeir gleymi sér ekki. Takmarkaður fjöldi má vera í mötuneytinu hverju sinni.