Undanfarnar vikur hafa nemendur í Veru sem er umsjónaráfangi fyrir nýnema í MK farið í vettvangsferð í Molann ungmennahús í Kópavogi.
Í heimsókninni hafa nemendur fengið fræðslu um starfsemi Molans og hvaða þjónustu og afþreyingu hann hefur upp á að bjóða.
Molinn er ungmennahús fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára og er staðsettur á menningarholtinu að Hábraut 2 í Kópavogi.
Hann hóf starfsemi sína formlega í maí 2008 og er markmiðið með starfinu að vera vettvangur fyrir menningarlega viðburði og grósku þar sem ungt fólk getur bæði nýtt aðstöðuna til listsköpunar og komið sér á framfæri, hvort sem um ræðir sjónlist, tónlist eða ritlist.
Þá geta nemendur meðal annars nýtt aðstöðuna til náms, tómstunda og hópastarfs.