MK er opinn 8. febrúar - staðkennsla í öllum greinum

Þrátt fyrir leiðinda veður er MK opinn þriðjudaginn 8. febrúar og kennsla með hefðbundnum hætti. Við brýnum fyrir nemendum að fara varlega og leggja tímanlega af stað í skólann því það er viðbúið að færð verði þung með morgninum.  Hafið samt í huga að í einhverjum áföngum gæti samt sem áður verið Teams kennsla því einhverjir kennarar í sóttkví eða einangrun. Þegar það á við fá nemendur nánari fyrirmæli frá sínum kennurum.