Íþróttafjör

Síðastliðinn föstudag bauð UMSK nemendum í ÍÞRÓ1AA að prófa skíðaskotfimi (biathlon) með breyttu sniði. Í stað skíðagöngu voru hlaup og svo var skotið í mark með sérstökum laser rifflum. Æfingunni lauk með keppni og var það samdóma álit allra að þetta hefði  verið hinn skemmtilegasti leikfimitími.