Gjöf til skólans

Hrefna Marín Gunnarsdóttir og Sveinn Kjarval frá Marel ásamt Baldri Sæmundssyni áfangastjóra verknám…
Hrefna Marín Gunnarsdóttir og Sveinn Kjarval frá Marel ásamt Baldri Sæmundssyni áfangastjóra verknáms og Hinriki Carli Ellertssyni matreiðslukennara.
Í baksýn eru svo matreiðslunemar.

Fulltrúar frá Marel, þau Hrefna Marín Gunnarsdóttir og Sveinn Kjarval, komu færandi hendi með gjafir til skólans í síðustu viku.

Um er að ræða tvær matvinnsluvélar af gerðinni Robot Coupe Blixer. Munu vélarnar nýtast vel í verklegri kennslu í matreiðslu og eru þessar vélar mikið notaðar við margskonar farsgerð og deiggerð.

Skólinn og nemendur eru mjög þakklát Marel fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun nýtast vel við kennslu í skólanum.