Árshátíð nemendafélagsins

Í kvöld verður árshátíð nemendafélagsins loksins haldin með pompi og prakt. Kvöldið byrjar á hátíðarkvöldverði í matsal skólans sem nemendur í þriðja bekk í framreiðslu og matreiðslu sjá um. Fordrykkur verður í boði frá kl. 18:00 og kvöldverður verður borinn fram kl. 19:00 en uppselt er í matinn. 

Árshátíðarballið verður svo haldið í Digranesi, húsið opnar kl. 22:00 og lokar kl. 23:00. Ballið stendur til kl. 01:00. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að sækja börn sín að skemmtun lokinni. 

Frí verður í fyrstu tveimur tímunum á morgun, föstudaginn 25. mars, svo að allir nái að jafna sig eftir dansinn og gleðina.