Áfangaval í bóknámi fyrir haustönn hófst í dag og er opið til kl. 14:00 föstudaginn 21. mars. Nemendur fæddir 2007-2008 velja með umsjónarkennara í kennslustund í VERA en aðrir nemendur velja sjálfir í Innu. Þeir sem þurfa aðstoð geta leitað til áfangastjóra, námsstjóra eða námsráðgjafa.
Allir nemendur í bóknámi verða að velja dagana 10.-21. mars 2025 því annars fá þeir ekki stundatöflu fyrir haustönn og skólavist er ekki tryggð. Val er því umsókn um skólavist á næstu önn og mikilvægt að vanda vel til þess.
Mikilvægt er að velja eingöngu þá áfanga sem nemandi á að taka samkvæmt brautarkröfu eða getur hugsað sér að taka í val þar sem allt áfangaval er bindandi. Nemendur á opinni braut þurfa að huga að kippum og velja áfanga sem passa inn í þær.