Áfangaval fyrir vorönn 2025

Áfangaval í bóknámi fyrir vorönn hófst 7. október og er opið til 18. október til kl. 15.00. Nemendur fæddir 2007-2008 velja með umsjónarkennara í kennslustund í VERA en aðrir nemendur velja sjálfir í Innu. Þeir sem þurfa aðstoð geta leitað til áfangastjóra, námsstjóra eða námsráðgjafa. Allir nemendur í bóknámi verða að velja dagana 7. - 18. október því annars er skólavist á vorönn ekki tryggð. Val er umsókn um skólavist á næstu önn og mikilvægt að vanda vel til þess.

Mikilvægt er að velja eingöngu þá áfanga sem nemandi á að taka samkvæmt brautarkröfu eða getur hugsað sér að taka í val þar sem allt áfangaval er bindandi. Nemendur á opinni braut þurfa að huga að kippum og velja áfanga sem passa inn í þær.