ALÞV2BA05 - Alþjóðaviðskipti

Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á mikilvægi alþjóðasamskipta á tímum hnattvæðingar. Fjölbreytileiki alþjóðaviðskipta er kynntur og áhersla lögð á að skoða hvernig menning ólíkra þjóða hefur mótað viðskiptastefnu þeirra. Helstu viðskiptalönd Íslendinga kynnt og aukið vægi Asíu markaðar metið í alþjóðaviðskiptum. Starfsemi alþjóðastofnana sem grundvallast á milliríkjasamningum er skoðuð svo og utanríkisstefna Íslendinga og þátttaka í fjölþjóðastarfi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Bera kennsl á helstu viðskiptalönd Íslendinga
  • Bera kennsl á helstu iðnríki heimsins
  • Bera kennsl á helstu fjölþjóðastofnanir heimsins
  • Bera kennsl á helstu áhrif hnattvæðingar
  • Greina margbreytilegar aðstæður ólíkra ríkja
  • Flokka mikilvægi viðskiptasamninga eftir landfræðilegri legu ríkja

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Taka þátt í og skipuleggja krefjandi verkefni
  • Greina undirstöðuatriði alþjóðasamskipta
  • Tjá sig um viðskiptastefnu Íslendinga
  • Tjá sig um utanríkisstefnu Íslendinga
  • Tjá sig um menningarmun þjóða

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Gagnrýna alþjóðastofnanir
  • Gagnrýna viðskiptastefnu þjóðar
  • Rökstyðja mikilvægi alþjóða samvinnu
  • Greina tækifæri með viðskiptasamningum
  • Skipuleggja alþjóðasamskipti með netmiðlum
  • Bera saman menningarstefnur þjóða