ENSA1FB00 - Enska 1 á framhaldsskólabraut
Megintilgangur áfangans er að byggja upp sjálfstraust nemenda gagnvart ensku, bæði í töluðu máli og rituðu. Lesefni áfangans er af ýmsum toga, bæði bókmenntatextar og tímaritsgreinar. Ritunarverkefni eru bæði frjáls og ritun sem byggir á lesefni áfangans. Áhersla er lögð á notkun orðabóka á netinu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallaratriðum enskrar málfræði
- grunnorðaforða til skilnings á textum og töluðu máli um kunnugleg efni og einnig til ritunar um sömu efni
- tilteknum hagnýtum orðarforða daglegs lífs
- heildarinntaki í munnlegum frásögnum og samtölum um efni almenns eðlis
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja talað mál um kunnuglegt efni
- skilja almenna texta með orðaforða úr daglegu lífi
- mynda setningar um kunnugleg efni
- nota upplýsingatækni til að afla sér gagna og efnis í málanáminu
- lesa á ensku sér til gagns og ánægju
- taka þátt í einföldum samtölum á ensku
- semja stuttar efnisgreinar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja almennt einfalt daglegt mál, þ.m.t. úr kvikmyndum og öðru afþreyingarefni ...sem er metið með... kynningu á verkefninu eða öðru munnlegu verkefni
- skilja almenna einfalda texta um kunnuglegt efni
- skilja stuttar blaða- og tímaritsgreinar um almenn efni og námsefni
- lesa sér til ánægju, t.d. bókmenntir eða um hugðarefni sín, og geta tjáð sig um efnið
- miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
- skrifa stutta, samfellda texta um persónuleg efni eða áhugamál og efni sem tengist námsefni áfangans