Rétt vinnubrögð í námi skipta máli og stuðla að árangri.
Námsráðgjafi aðstoðar nemendur með:
- að skipuleggja námsferilinn.
- námstækni s.s. námsaðferðir, tímastjórnun, lestraraðferðir og prófundirbúning.
- leiðsögn og fræðslu um lífsstíl og venjur sem stuðlað getað að aukinni einbeitingu, úthaldi og auknu tilfinningalegu jafnvægi.
Sértæk þjónusta.
- Persónulegur vandi getur haft áhrif á námsframvindu og árangur í námi.
- Námsráðgjafar veita nemendum ráðgjöf og stuðning vegna:
- tímabundinna erfiðleika og eða áfalla
- erfiðleika í einkalífi
- streitu og kvíða
- og annað sem upp getur komið
- Námserfiðleikar geta haft áhrif á námsframvindu og árangur í námi.
- Námsráðgjafar veita nemendum ráðgjöf og stuðning vegna:
- lesblindu
- stærðfræðierfiðleika
- ADHD og ADD
- sérþarfa í námi
- samstarfs við yfirvöld, sérfræðinga og þjónustuaðila.
- Einnig nemendum með annað móðurmál en íslensku og tvítyngdum nemendum sem og nemendum sem hafa dvalist langdvölum erlendis.
Nemendur með greindan námsvanda fá lengdan próftíma en próftíminn er 1 og ½ klst. en allir nemendur fá 2 klst. Hljóðgerflill er aðgengilegur í prófum. Séraðstæðum eru í boði í lokaprófum fyrir nemendur með greindan vanda. Önnur séraðstoð er í boði eftir því sem við verður komið.
Náms og starfsval.
Námsráðgjafar veita aðstoð við náms-og starfsval með:
- fræðslu og samtali um nám og störf.
- greiningu styrkleika og veikleika með tilliti til náms og starfa.
- áhugasviðsgreiningu.
Námsráðgjafar veita upplýsingar um námsframboð og fylgjast með breytingum sem verða á þessu sviði.
Þeir veita nemendum:
- upplýsingar og ráðgjöf um nám, námsleiðir, námskeið og starfsmenntun.
- upplýsingar með námskynningum innan skóla og þátttöku og undirbúa nemendur fyrir stærri sameiginlegar námskynningar í menntakerfinu.
- aðstoð við gagna og upplýsingaöflun.
Samstarf við forráðamenn.
Það gera námsráðgjafar með:
- því að stuðla að bættu samstarfi heimila og skóla.
- því að kynna skólastarfið fyrir forráðamönnum.
- stuðningsviðtölum og leiðsögn við foreldra.
Námsráðgjafar vinna með forráðamönnum nemenda með það að leiðarljósi að skólaganga nemenda verði sem farsælust.