Viðskipta- og hagfræðibraut - afreksíþróttasvið

Prentvæn útgáfa

Á viðskipta- og hagfræðabraut er áhersla lögð á að byggja upp sterkan þekkingargrunn á sviði viðskipta- og hagfræðigreina þar sem nemendur öðlast innsýn í fræðilegar starfsaðferðir.

Með bundnu vali geta nemendur aðlagað námið að þörfum sínum og áhugasviðum. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám s.s. í viðskiptagreinum, hagfræði og lögfræði. Þá veitir námið góða innsýn í íslenskt viðskiptaumhverfi. Með afreksíþróttasviði er nemanda sem stundar keppnisíþróttir gert kleift að stunda þær samhlíða námi.
Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma. Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi. Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 203 einingar, en nemandi má útskrifast með fleiri einingar.

Brautin skiptist í kjarna 183 einingar (þar af 30 einingar í afreksíþróttir), og 20 einingar bundið val, samtals 203 einingar.

Kjarni - 183 einingar

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Afreksíþróttir AFRE 1AA05 | 1AB05 | 2BA05 | 2BB05 | 3CA05 | 3CB05 30  
Danska DANS 2BA05 5  
Enska ENSK 2BA05 | 2BB05 | 3CA05  15  
Íslenska ÍSLE 2BA05 | 2BB05 | 3CA05 | 3CB05 20  
Stærðfræði STÆR 2BB05 | 2BC05 | 2BD05 | 3CB05 | 3CC05 25  
Þriðja mál SPÆN
ÞÝSK
1AA05 | 1AB05 | 1AC05
1AA05 | 1AB05 | 1AC05
15  
Fjármálalæsi FJÁR 2BA05 5 Áfangi tekinn á 5.-6. önn
Kynjafræði KYNJ 2BA05 5 Áfangi tekinn á 3.-4. önn
Virðing, efling, rökhugsun og atorka VERA 1AA01 | 1AB01 | 1AC01 | 1AD01 | 2BA01 5 2BA tekinn á lokaönn
Lokaverkefni LOVE 3CA03 3 Áfangi tekinn á lokaönn
Umhverfisfræði UMHV 2BA05 5 Áfangi tekinn á 1.-2. önn
Félagsgreinar   FÉLA2BA05 | FJÖL2BA05 | SAGA2BA05 | SAGA2BB05 | SAGA2BC05 | SÁLF2BA05 5 Nemandi velur einn áfanga
Raungreinar   EÐLI2BA05 | EFNA2BA05 | JARÐ2BA05 | LÍFF2BA05 5 Nemandi velur einn áfanga
Alþjóðaviðskipti ALÞV 2BA05 5  
Bókfærsla BÓKF 1AA05 | 2BA05 10  
Markaðsfræði MARK 2BA05 5  
Rekstrarhagfræði REKS 2BA05 5  
Stjórnun STJÓ 2BA05 5  
Viðskiptalögfræði VLÖG 2BA05 5  
Þjóðhagfræði ÞJÓÐ 2BA05 5  

Bundið val - 20 einingar

Nemendur velja áfanga í bundið val, miðað við aðgangsviðmið háskóla

Nemandi velur 5 einingar (einn áfanga)

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Enska ENSK 3CB05    
Stærðfræði STÆR 3CA05 | 3CD05 | 3CE05    

Nemandi velur 15 einingar (þrjá áfanga)

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Bókfærsla BÓKF 3CA05    
Fjármálafræði FJÁF 3CA05    
Frumkvöðlafræði FRUM 3CA05   Áfangi tekinn á 5.-6. önn
Markaðsfræði MARK 3CA05    
Rekstrarhagfræði REKS 3CA05    
Tölvubókhald TÖBÓ 2BA05    
Þjóðhagfræði ÞJÓÐ 3CA05    

Lokamarkmið viðskipta- og hagfræðabrautar

Að loknu námi á viðskipta- og hagfræðabraut skal nemandi hafa hæfni til að:

  • afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka þær.
  • sýna frumkvæði og skapandi hugsun við lausnamiðað nám.
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína.
  • leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra.
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni.
  • taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi.
  • nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt.
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags.
  • nýta sér góða almenna þekkingu á sviði viðskipta- og hagfræðigreina.
  • beita aðferðum þeirra greina sem hann sérhæfir sig í og velja viðeigandi rannsóknaraðferð hverju sinni.
  • takast á við frekara nám, einkum í viðskiptagreinum, hagfræði og lögfræði.
Síðast uppfært 03. október 2024