Raungreinabraut

Á raungreinabraut er áhersla lögð á að byggja upp sterkan þekkingargrunn á sviði náttúru-, raunvísindagreina og stærðfræði þar sem nemendur öðlast innsýn í fræðilegar starfsaðferðir.

Með bundnu vali geta nemendur aðlagað námið að þörfum sínum og áhugasviðum. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum, náttúru- og raunvísindum, umhverfisvísindum, stærðfræði og tæknigreinum.
Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma.  Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi. Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 202 einingar, en nemandi má útskrifast með fleiri einingar.

Brautin skiptist í kjarna 157 einingar, 30 einingar bundið val og 15 einingar frjálst val, samtals 202 einingar.

Kjarni - 157 einingar

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Danska DANS 2BA05 5  
Enska ENSK 2BA05 | 2BB05 | 3CA05 15  
Íslenska ÍSLE 2BA05 | 2BB05 | 3CA05 | 3CB05 20  
Stærðfræði STÆR 2BB05 | 2BC05 | 2BD05 | 3CB05 | 3CC05 25  
Þriðja mál SPÆN
ÞÝSK
1AA05 | 1AB05 | 1AC05
1AA05 | 1AB05 | 1AC05
15  
Fjármálalæsi FJÁR 2BA05 5 Áfangi tekinn á 5.-6. önn
Íþróttir ÍÞRÓ 1AA01 4 Áfangi tekinn fjórum sinnum
Kynjafræði KYNJ 2BA05 5 Áfangi tekinn á 3.-4. önn
Virðing, efling, rökhugsun og atorka VERA 1AA01 | 1AB01 | 1AC01 | 1AD01 | 2BA01 5 2BA tekinn á lokaönn
Lokaverkefni LOVE 3CA03 3 Áfangi tekinn á lokaönn
Lýðheilsa og vellíðan LÝÐH 2BA05 5 Áfangi tekinn á 1.-2. önn
Umhverfisfræði UMHV 2BA05 5 Áfangi tekinn á 1.-2. önn
Félagsgreinar   FÉLA2BA05 | FJÖL2BA05 | SAGA2BA05 | SAGA2BB05 | SAGA2BC05 | SÁLF2BA05 5 Nemandi velur einn áfanga
Eðlisfræði EÐLI 2BA05 | 2BB05 10  
Efnafræði EFNA 2BA05 | 2BB05 10  
Jarðfræði JARÐ 2BA05 | 3CA05 10  
Líffræði LÍFF 2BA05 | 2BB05 10  

Bundið val - 30 einingar

Nemendur velja áfanga í bundið val, miðað við aðgangsviðmið háskóla

Nemandi velur 15 einingar (þrjá áfanga)

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Enska ENSK 3CB05    
Stærðfræði STÆR 3CA05 | 3CD05 | 3CE05    

Nemandi velur 15 einingar (þrjá áfanga)

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Eðlisfræði EÐLI 3CA05     
Efnafræði EFNA 3CA05 | 3CC05    
Jarðfræði JARÐ 3CB05    
Líffræði LÍFF 3CA05 | 3CB05 | 3CC05    
Næringarfræði NÆRI 2BA05    
Forritun FORR 2BA05    

Frjálst val - 15 einingar

Frjálst val 15 einingar þar sem nemendi getur haldið áfram að dýpka þekkingu sína og velja fleiri áfanga af sérsviði raungreinabrautar eða valið aðra áfanga sem skólinn býður upp á.

Lokamarkmið raungreinabrautar:

Að loknu námi á raungreinabraut skal nemandi hafa hæfni til að:

  • afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka þær.
  • sýna frumkvæði og skapandi hugsun við lausnamiðað nám.
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína.
  • leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra.
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni.
  • taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi.
  • nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt.
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags.
  • nýta sér góða almenna þekkingu á sviði náttúru- og raunvísinda og stærðfræði.
  • beita aðferðum þeirra greina sem hann sérhæfir sig í og velja viðeigandi rannsóknaraðferð hverju sinni.
  • takast á við frekara nám, einkum í heilbrigðisvísindum, náttúru- og raunvísindum, umhverfisvísindum, stærðfræði og tæknigreinum.
Síðast uppfært 26. september 2024