Opin braut

Á opinni braut er áhersla lögð á að byggja upp almennan sterkan þekkingargrunn með því að nemendur aðlaga námið að þörfum sínum og áhugasviðum.

Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Við samsetningu námsins tryggir nemandi sér að námið veiti honum réttan undirbúning undir það framhaldsnám sem hann hyggst leggja stund á.
Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma. Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi. Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 202 einingar, en nemandi má útskrifast með fleiri einingar.

Brautin skiptist í kjarna 107 einingar, 20 einingar bundið val, 45 einingar bundið pakkaval og 30 einingar frjálst val, samtals 202 einingar.

Kjarni - 107 einingar

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Danska DANS 2BA05 5  
Enska ENSK 2BA05 | 2BB05 | 3CA05  15  
Íslenska ÍSLE 2BA05 | 2BB05 | 3CA05 | 3CB05 20  
Stærðfræði STÆR 2BA05 | 2BB05 | 2BC05 10 Nemandi velur 2BA eða 2BC
Þriðja mál SPÆN
ÞÝSK
1AA05 | 1AB05 | 1AC05
1AA05 | 1AB05 | 1AC05
15  
Fjármálalæsi FJÁR 2BA05 5 Áfangi tekinn á 5.-6. önn
Íþróttir ÍÞRÓ 1AA01 4 Áfangi tekinn fjórum sinnum
Kynjafræði KYNJ 2BA05 5 Áfangi tekinn á 3.-4. önn
Virðing, efling, rökhugsun og atorka VERA 1AA01 | 1AB01 | 1AC01 | 1AD01 | 2BA01 5 2BA tekinn á lokaönn
Lokaverkefni LOVE 3CA03 3 Áfangi tekinn á lokaönn
Lýðheilsa og vellíðan LÝÐH 2BA05 5 Áfangi tekinn á 1.-2. önn
Umhverfisfræði UMHV 2BA05 5 Áfangi tekinn á 1.-2. önn
Raungreinar   EÐLI2BA05 | EFNA2BA05 | JARÐ2BA05 | LÍFF2BA05 5 Nemandi velur einn áfanga
Félagsgreinar   FÉLA2BA05 | FJÖL2BA05 | SAGA2BA05 | SAGA2BB05 | SAGA2BC05 | SÁLF2BA05 5 Nemandi velur einn áfanga

Bundið val - 20 einingar

Nemendur velja áfanga í bundið val, miðað við aðgangsviðmið háskóla

Nemandi velur 20 einingar (fjóra áfanga)

Námsgrein   Áfangar Einingar Mikilvægar upplýsingar
Danska DANS 2BB05 | 3CA05    
Enska ENSK 3CB05 | 3CC05    
Íslenska ÍSLE 3CC05    
Stærðfræði STÆR 2BD05 | 3CA05 | 3CB05 | 3CC05 | 3CD05 | 3CE05    
Þriðja mál SPÆN
ÞÝSK
2BD05 | 2FE05
2BA05 | 2BB05 | 2FE05
   

Bundið pakkaval - 45 einingar 

Nemandi velur 3 mismunandi kippur. Ein kippa samanstendur af þremur áföngum, alls 15 einingar. Af þessum 15 einingum þurfa að minnsta kosti 5 einingar að vera á þriðja þrepi.

Kippur í boði

Frjálst val - 30 einingar

Frjálst val 30 einingar þar sem nemandi getur haldið áfram að dýpka þekkingu sína eða valið aðra áfanga sem skólinn býður upp á.

Lokamarkmið opinnar brautar

Að loknu námi á opinni braut skal nemandi hafa hæfni til að:

  • afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka þær.
  • sýna frumkvæði og skapandi hugsun við lausnamiðað nám.
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína.
  • leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra.
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni.
  • taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi.
  • nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt.
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags.
  • beita aðferðum þeirra greina sem hann sérhæfir sig í og velja viðeigandi rannsóknaraðferð hverju sinni.
  • nýta sérþekkingu sína sem hann hefur öðlast á brautinni til frekara náms eða starfs.
Síðast uppfært 26. september 2024