VERA2BA01 - Virðing, efling, rökhugsun og atorka V

Umfjöllunarefni áfangans miðar að því að undirbúa nemendur fyrir virka þátttöku í samfélaginu. Nemendur eru fræddir um ýmis mikilvæg málefni samtímans eins og jafnrétti, umhverfismál, alþjóðasamfélagið og mannréttindi. Námsleiðir að loknu stúdentsprófi eru kynntar og nemendur fá fræðslu um réttindi og skyldur á vinnumarkaðinum, fjármál og borgararéttindi. Fjallað verður um breytt samfélag og sjálfsmynd einstaklinga í kjölfar upplýsingatæknibyltingar og samfélagsmiðla. Auk þess verða lífstílsbreytingar í kjölfar alheimsfaraldurs skoðaðar og áhrif þeirra á menningu okkar. 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Íslensku samfélagi, réttindum og skyldum bæði í námi og starfi.
  • Jafnrétti, umhverfismálum, alþjóðasamfélaginu, borgaravitund og mannréttindum.
  • Samfélagslegum breytingum og áhrifum þeirra á einstaklinginn. 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Tjá sig og taka þátt í umræðum.
  • Rökræða og vera gagnrýninn á upplýsingar í umhverfi sínu. 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka virkan og ábyrgan þátt í lýðræðislegu samfélagi.
  • Temja sér víðsýni og jákvætt hugarfar gagnvart sjálfum sér og öðrum.
  • Átta sig á að honum eru allir vegir færir. 

Undanfari: Áfangi tekinn á lokaönn.