TÖBÓ2BA05 - Tölvubókhald

Nemendur dýpka skilning sinn á bóhaldshringrás og þjálfast í að hefja bókhald og loka því samkvæmt reglum tvíhliða bókhalds. Bókhald fært í tölvukerfi eftir fylgiskjölum með bókhaldslyklum. Farið er yfir kröfur sem gerðar eru til tölvubókhaldskerfa og varðveislu gagna og fylgiskjala sem notuð eru við slíkt bókhald. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á hvernig fjárhagsbókhald sækir upplýsingar í birgðabókhald, viðskiptamannabókhald, sölubókhald og launabókhald. Fjallað um uppgjör virðisaukaskatts og uppgjörsfærslur, launaseðla, afstemmingar og leiðréttingafærslur. Kynntir eru möguleikar á ýtarlegri skýrslugerð ásamt túlkun og greiningu upplýsinga. Nemendum er kynnt mikilvægi upplýsingakerfa fyrir nútímastjórnendur þar sem nákvæmar upplýsingar í rauntíma nýtast og eru grunnforsenda við skilvirka ákvarðanatöku.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Flokkun merkingu og varðveislu fylgiskjala.
  • Og geti sett upp og skipulagt bókhaldslykla.
  • Tengslum fjárhagsbókhalds við önnur kerfi.
  • Mikilvægi afstemmingar við uppgjör.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skrá, bóka og bakfæra fylgiskjöl í mismunandi kerfum.
  • Stofna og eyða t.d. vörunúmerum, birgjum og viðskiptamönnum.
  • Útbúa skilaskýrslur (t.d. virðisaukaskýrslur).
  • Gera upp tiltekin reikningstímabil.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta nýtt upplýsingakerfi til markvissrar upplýsingaöflunar og skýrslugerðar.
  • Geta túlkað upplýsingar.
  • Dregið ályktanir um stöðu reksturs út frá skýrslum úr bókhaldskerfum.
  • Greina upplýsingar úr bókhaldskerfum (stöðu viðskiptamanna).
  • Dregið saman upplýsingar til uppgjörs hjá endurskoðenda.