ÞÝSK1AB05 - Þýska fyrir grunnnotanda - b
Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Unnið er að færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Orðaforði eykst og ný málfræðiatriðið eru æfð. Nemendur þurfa í auknum mæli að tjá sig munnlega og textar verða smám saman lengri og þyngri. Flétt er inn í kennsluna upplýsingum um menningu og staðhætti þýskumælandi landa. Áhersla er lögð á frumkvæði nemenda og að þeir fylgist með framvindu náms síns og framförum í samræmi við evrópska tungumálamöppu. Nemendur eru þjálfaðir í notkun þýsk-þýskrar orðabókar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans.
- Grundvallarþætti þýska málkerfisins.
- Staðháttum, samskiptavenjum og menningu þýskumælandi landa og þjóða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Greina talað mál um kunnugleg efni þegar talað er fremur hægt og skýrt og geta fylgt einföldum fyrirmælum.
- Lesa og greina þyngri og lengri texta sem innihalda algengan orðaforða.
- Taka þátt í einföldum samræðum og tjá sig um efni sem hann þekkir.
- Tjá sig um liðna atburði, nánasta umhverfi, eigin tilfinningar og reynslu auk þess að afla sér einfaldra upplýsinga með því að beita grunnorðaforða tungumálsins og nota til þess m.a. þýsk-þýska orðabók.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Hlusta á og greina talað mál um kunnugleg efni og draga viðeigandi ályktanir.
- Rökstyðja og bera saman notkun á einföldum textum yfir athafnir daglegs lífs.
- Leggja grunn að einföldum samræðum þannig að hann rökstyðji, spyrji og svari einföldum, algengum spurningum.
- Draga ályktanir og nota einföld orðasambönd og setningar til þess að vísa veginn, gefa upplýsingar um búsetu ofl.
- Skipuleggja frásögn og rökstyðja orðaval sitt í skapandi skrifum.
Undanfari: ÞÝSK1AA05.
Námsmat: Símat.