ÞÝSK1AA05 - Þýska 1 fyrir grunn notanda - a

Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, framsögn, hlustun og ritun í samræmi við Evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Lögð er áhersla á að nemendur geri sér ljósa eigin ábyrgð í málanámi og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta.
  • Markmiðum áfangans.
  • Grundvallarþáttum þýska málkerfisins.
  • Menningu, samskiptavenjum og siðum þýskumælandi landa og þjóðanna þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt og geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið helstu kveðjur og kurteisisávörp.
  • Lesa og greina orð og mjög einfaldar setningar úr daglegu lífi.
  • Taka þátt í einföldum samræðum og tjá sig um efni sem hann þekkir.
  • Tjá sig um sjálfan sig, fjölskyldu sína og atburði daglegs lífs með því að beita grunnorðaforða tungumálsins.
  • Skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hlusta á og greina einfalt talað mál um sjálfa/n sig og nánasta umhverfi og draga viðeigandi ályktanir.
  • Rökstyðja og bera saman notkun á einföldum setningum yfir athafnir daglegs lífs.
  • Leggja grunn að einföldum samræðum þannig að hann rökstyðji, spyrji og svari einföldum, algengum spurningum og spurningum um kunnug málefni.
  • Draga ályktanir og nota einföld orðasambönd og setningar til þess að segja frá búsetu sinni og fólki sem hann þekkir.
  • Skipuleggja frásögn og rökstyðja orðaval í skapandi skrifum.