ÞJSK1FB03 - Ferðaþjónusta og þjónustusamskipti á framhaldsskólabrú

Í þessum áfanga er lögð áhersla á þjónustugæði og þjónustusamskipti. Fjallað er um einkenni ferðaþjónustustarfa og ferðamanninn/gestinn sem viðskiptavin. Einnig er fjallað um samskipti í alþjóðlegu umhverfi þar sem sérstaklega er tekið á ólíkum viðhorfum og mismunandi menningu. Áhersla er lögð á tjáningu ásamt rafrænum samskiptum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mikilvægi góðrar þjónustu.
  • Þjónustugæðum og mikilvægi þess að setja sér skýr markmið í þeim efnum.
  • Einkennum ferðaþjónustustarfa.
  • Mikilvægi góðra samskipta í alþjóðlegu umhverfi, s.s. viðhorfi, menningu, fordóma o.fl.
  • Ólíkum þörfum og væntingum viðskiptavina/ferðamanna/gesta.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Átta sig á hinum ýmsu einkennum mannlegra samskipta.
  • Gera sér grein fyrir sérstöðu ólíkra starfa í ferðaþjónustu.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Eiga samskipti við fólk af ólíku þjóðerni, kyni og aldri byggt á skilningi og virðingu.
  • Vinna að bættri þjónustu og betri samskiptum.
  • Tjá sig skýrt og skilmerkilega í rituðu og töluðu máli.
  • Taka ábyrgð á eigin framkomu, afstöðu og sýn á þjónustuhlutverkið.

Undanfari: Enginn.