STÆR3CD05 - Tvinntölur og deildajöfnur

Efni áfangans eru tvinntölur og deildajöfnur af fyrsta og öðru stigi. Jafnframt er farið í lengd ferils og yfirborðsflatarmál. Lögð er áhersla á raunhæf verkefni og skoðaðar andhverfur hornafalla. Við lausn verkefna eru notaðir vasareiknar og tölvuforrit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Greina tvinntölur.
  • Bera kennsl á tvinntalnasléttu.
  • Bera kennsl á veldi tvinntalna.
  • Vinna með mismunandi margliðujöfnur.
  • Bera kennsl á mismunandi deildajöfnur.
  • Finna lengd ferils og yfirborðsflatarmál snúðs.
  • Finna andhverfu hornafalla.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Reikna með tvinntölum í tvinntalnasléttu.
  • Reikna veldi tvinntalna.
  • Kanna helstu gerðir margliða.
  • Nota deildun í raunhæfum verkefnum.
  • Nota heildun til að leysa raunveruleg viðfangsefni.
  • Kanna helstu gerðir deildajafna.
  • Kanna lengd ferils.
  • Sanna reglur.
  • Kanna andhverfur hornafalla.
  • Nota grafíska vasareikna og stærðfræðiforrit.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skiptast á skoðunum við aðra um lausnir.
  • Útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega.
  • Kynna ólíkar aðferðir við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna.
  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
  • Geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni.
  • Beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að vinna með margliður, vísis -og lograföll við lausn raunverulegra viðfangsefna.

Undanfari: STÆR3CC05.

Námsmat: Lokapróf og verkefnavinna. Lokapróf gildir 50-80%, fer eftir námsárangri nemenda á önninni.