STÆR3CA05 - Tölfræði og ályktunartölfræði

Nemendur fá frekari kynningu á aðferðum sem notaðar eru í ályktunartölfræði. Fjallað er um þær aðferðir sem notaðar eru til að draga ályktanir um úrtak á grundvelli upplýsinga um þýði. Fjallað verður um notkun normaldreifinga, t-dreifingar, kíkvaðratprófanir og F-dreifingar. Einnig er fylgni athuguð og gerðar spár út frá fylgni.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Líkindadreifingu sem líkani við útreikning líkinda.
  • Grunnatriðum úrtaksfræði og meginmarkgildissetningu tölfræðinnar.
  • Úrtaksdreifingu við framsetningu tölfræðilegra ályktana.
  • Hugtökum línulegrar aðhvarfsgreiningar og bestu línu gegnum gagnapunkta í sléttum fleti.
  • Fylgni.
  • Ýmsum tölfræðiprófum sem notuð eru til að draga ályktanir.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota hugtökin öryggisbil, öryggismörk, skekkjumörk, öryggisstig o.s.frv.
  • Setja fram tilgátu og gera á henni viðeigandi tölfræðileg próf.
  • Geta fundið fylgni, jöfnu bestu línu og gert spá.
  • Geta túlkað fylgnistuðla.
  • Nota ýmis tölfræðipróf t.d. t-próf, kíkvaðrat-próf og F-próf.
  • Geta nýtt sér tölfræðileg forrit við gagnavinnslu, prófanir og ályktanir.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skiptast á skoðunum við aðra.
  • Útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt.
  • Kynna ólíkar aðferðir við framsetningu tölfræðilegra viðfangsefna.
  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
  • Geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta.
  • Beita skipulegum aðferðum við að lausn tölfræðilegra viðfangsefna.