Efni áfangans er að kunna skil á mismunandi gerðum falla, s.s. margliðum,algildisföllum, hornaföllum, logrum, vísisföllum, samskeyttum og samsettum föllum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mismunandi eiginleikum ólíkra falla.
- Eiginleikum margliða.
- Eiginleikum algildisfalla.
- Eiginleikum hornafalla, undirstöðureglum hornafræðinnar og reglum tengdum þeim.
- Einingahringnum og tengslum hans við hornaföll.
- Logrum og vísisföllum og reglum þeim tengdum.
- Eiginleikum samsettra og samskeyttra falla.
- Andhverfu falla.
- Samfelldni, eintækni, átækni og gagntækni falla.
- Oddstæðum og jafnstæðum föllum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota mismunandi gerðir falla til að leysa verkefni, til dæmis nota vísisföll í vaxtareikningi.
- Búa til gildistöflu og teikna graf mismunandi falla.
- Leysa jöfnur með mismunandi föllum.
- Nota tölvuforrit við lausn verkefna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
- Skilja röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni.
- Beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur, ójöfnur, föll eða gröf.
- Skiptast á skoðunum við aðra um stærðfræðileg viðfangsefni.
- Útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega.
Undanfari: STÆR2BC05.
Námsmat: Lokapróf og verkefnavinna. Lokapróf gildir 50-90%, fer eftir námsárangri nemenda á önninni.