STÆR2BC05 - Algebra, föll og gröf

Áfanginn er ætlaður nemendum á raungreina- og viðskiptabraut. Helstu efnisþættir eru algebra, föll, margliður og fjármálalæsi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Undirstöðureglum algebrunnar.
  • Fallhugtakinu og formengi og varpmengi falls.
  • Jöfnum og ójöfnum af fyrsta og öðru stigi.
  • Margliðum og margliðudeilingu.
  • Ráðstöfunartekjum og kostnaði við lífsstíl.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Vinna með stæður og leysa jöfnur og ójöfnur.
  • Margliðudeila og þátta.
  • Vinna með föll og gröf.
  • Greina valkosti í fjármálum.
  • Nota vasareikni og stærðfræðiforrit við lausn verkefna.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum við aðra.
  • Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfæðilegra hugmynda og viðfangsefna.
  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau.
  • Gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
  • Átta sig á fjárhagslegum afleiðingum ákvarðanna sinna.
  • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausnir verkefna.
  • Meta hvort upplýsingar eru réttar og áreiðanlegar.