STÆR2BB05 - Tölfræði, talningafræði og líkindafræði
Fjallað er um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim. Farið er í undirstöðuhugtök úr lýsandi tölfræði, talningafræði, mengjafræði, líkindareikningi og einföld tölfræðileg próf. Við lausn verkefna eru notuð tölvuforrit.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Undirstöðuhugtökum úr lýsandi tölfræði, s.s. miðsækni, tíðni og dreifingu.
- Undirstöðuatriðum í mengjafræði og einföldum mengjareikningi.
- Helstu reglum talningafræðinnar.
- Tvíliðustuðlum og Pascalsþríhyrningnum.
- Líkindum og líkindadreifingu ásamt einföldum reglum sem gilda í líkindareikningi.
- Fylgni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Skrá lausnir sínar skipulega.
- Nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni.
- Leysa talningafræðileg vandamál.
- Nota fjölbreytt vinnubrögð við flokkun og vinnslu tölfræðilegra gagna.
- Finna fylgni og gera einfalda spá.
- Nota forrit til að leysa ýmis tölfræðileg viðfangsefni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skiptast á skoðunum við aðra.
- Útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt.
- Beita ólíkum aðferðum við framsetningu tölfræðilegra viðfangsefna.
- Útskýra merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
- Vinna með röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta.
Undanfari: STÆR2BA05 eða STÆR2BC05.
Námsmat: Símat.