STÆB1FB00 - Stærðfræði á framhaldsskólabrú II

Grunnáfanga í stærðfræði er ætlað að undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám á 2. þrepi. Áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð og nákvæmni í framsetningu og lausnum verkefna. Helstu efnisþættir eru: Tölur og talnareikningur, stæður og jöfnur, hlutföll og prósentur og rúmfræði. Við lok áfanga á nemandi að hafa öðlast færni í að vinna með ofangreina efnisþætti og kunna að beita vasareikni og tölvu við úrlausn þeirra.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Forgangsröð aðgerða, einfaldri þáttun og einföldum jöfnureikningum.
  • Brotum, prósentu-, hlutfalla- og vaxtareikningi.
  • Notkun tákna sem staðgengla talna.
  • Metrakerfi.
  • Flatar- og rúmmálsreikningi.
  • Hornum og hyrningum.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita forgangsröð aðgerða og nákvæmni í námundun talna.
  • Vinna með almenn brot, prósentu-, hlutfalla og vaxtareikningi.
  • Vinna með stæður og leysa jöfnur.
  • Reikna flatarmál og rúmmál algengra hluta.
  • Vinna með horn og hyrninga.
  • Nota vasareikna og algeng tölvuforrit.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum um þær við aðra og útskýra hugmyndir og verk í mæltu máli og myndrænt.
  • Átta sig á og skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
  • Beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta og útskýra aðferðir sínar.
  • Meta hvort upplýsingar eru réttar og/eða áreiðanlegar.
  • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræði, frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna.
  • Geta sett hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning.

Undanfari: STÆA1FB00