SÁLF1FB03 - Jákvæð sálfræði á framhaldsskólabraut

Farið verður í fjölbreytta þætti sem snúa að bættri andlegri heilsu. Hugtök skoðuð sem hafa mikil áhrif á líf okkar eins og hvað það er sem veitir okkur hamingju, hverjir okkar styrkleikar eru og hvernig við getum eflt okkur á þeim sviðum sem við viljum bæta. Leiðir verða skoðaðar sem geta hjálpað okkur að lifa sátt í núinu eins og með því að nota tónlist og beita slökunaraðferðum. Samskipti milli fólks verða skoðuð og farið í mikilvægi þess að eiga góð samskipti við alla.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum sem snúa að jákvæðum tilfinningum.
  • Hvað geri hann hamingjusaman.
  • Hugtökunum styrkleikar og veikleikar.
  • Mikilvægi þess að hugsa jákvætt.
  • Núvitundar- og slökunaræfingum.
  • Mikilvægi góðra samskipta.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina jákvæðar hugsanir frá neikvæðum.
  • Meta eigin styrkleika og veikleika.
  • Átta sig á eigin líðan.
  • Taka tillit til ólíkra einstaklinga.
  • Hafa áhrif á samskipti við aðra.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hugsa jákvætt til að bæta eigin líðan.
  • Auka eigin hamingju.
  • Nýta eigin styrkleika.
  • Lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
  • Eiga góð samsktpti við aðra.