SAGA3CC05 - Listasaga

Saga sjónlista frá fornöld til samtímans. Megináhersla er lögð á vestræna listasögu en einnig er fjallað um listþróun í öðrum heimshlutum. Gerð er tilraun til að leiðrétta kynjahalla listasögunnar. Meðal viðfangsefna eru einkenni ýmissa stíla og tímabila í byggingarlist, höggmyndalist og málaralist. Sömuleiðis eru kynnt ný listform og nemendur kynna sér íslenska myndlist í fortíð og samtíma.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Einstökum tímabilum í listasögu og helstu einkennum þeirra og átta sig á samhengi og þróun listasögunnar.
  • Mismunandi tækni og aðferðum listamanna.
  • Helstu stefnum og straumum í samtímalist og fulltrúum þeirra, innlendum og erlendum.
  • Fjölbreytileika listasögunnar og því að henni hefur hingað til ekki alltaf verið miðlað með sanngjörnum hætti.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita fjölbreyttum aðferðum til að leita sér upplýsinga og meta ólíkar greinar sjónlista.
  • Miðla þekkingu sinni á sjónlistum á skiljanlegan hátt og nota til þess fjölbreyttar aðferðir.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Draga ályktanir um einstök listaverk, vinnslu þeirra og merkingu.
  • Skoða listaverk frá ólíkum sjónarhornum og lýsa þeim á hlutlægan og rökstuddan hátt.
  • Átta sig á félagslegum bakgrunni sjónlista á mismunandi stöðum og tímaskeiðum.
  • Fjalla á gagnrýninn hátt um sjónlistir, eldri verk og samtímaverk.