KYNJ2BA05 - Kynjafræði

Markmið áfangans er kynja- og jafnréttisfræðsla. Í áfanganum viðfangsefnið kynjafræði sem er þverfagleg fræðigrein sem á rætur sínar í félagsfræði og stjórnmálafræði Hugtökin: kyn, kyngervi, kynvitund og kynhneigð eru lögð til grundvallar auk annarra hugtaka fræðigreinarinnar. Meðal efnisþátta eru: kynjakerfið, staðalímyndir, eðlishyggja, mótunarhyggja, karlmennska, kvenska, klámvæðing og kynbundið ofbeldi. Fjallað er um fjölmiðla og hlut þeirra í mótun staðalímynda og viðhaldi kynjakerfisins. Saga kvennabaráttunnar er rakin. Fjallað er um vald og kortlagning óformlegra valdhátta í afmörkuðu samhengi. Skoðað er hvernig kyn er samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum s.s. þjóðernislegum uppruna, kynhneigð, trúarskoðunum, fötlun, aldri, stétt og fleiru. Eitt af meginmarkmiðum áfangans er að vekja ungt fólk til vitundar um það að jafnrétti kynja er ekki náð og að það næst ekki án baráttu. Lögð er áhersla á þátttöku nemenda, umræður og skoðanaskipti á jafnréttisgrunni. Atburðum líðandi stundar er skotið inn í áfangann eftir því sem tilefni gefst til og nemendum er hjálpað að nota ,,kynjagleraugun“ (sjónarhorn kynjafræðinnar) á veröldina í kringum sig.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu viðfangsefnum, aðferðum og hugtökum kynjafræðinnar til að geta tjáð og rökstutt skoðanir sínar á jafnrétti.
  • Birtingarmyndum kynjaskekkju eins og hún birtist í samfélaginu s.s. fjölmiðlum.
  • Fjölbreytileika mannlífsins.
  • Kynjakerfinu og þeirri mismunun sem byggir á kyni og öðrum mismunabreytum.
  • Kynbundnu ofbeldi og afleiðingum þess.
  • Klámi og áhrifum þess á kynheilbrigði.
  • Stöðu karla og kvenna í íslensku samfélagi fyrr og nú.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Taka þátt í samræðum um jafnréttismál, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra.
  • Meta stöðu jafnréttismála og átta sig á því hvar pottur er brotinn í þeim málaflokki.
  • Greina áhrif kynjakerfisins á eigið líf og heiminn í kringum sig.
  • Beita feminísku viðhorfi (kynjagleraugum), t.d. að greina staðalmyndir og rökskekkjur í fréttaflutningi og annarri orðræðu.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Virða lífsgildi, mannréttindi og jafnrétti.
  • Ígrunda eigin skoðanir og viðhorf, setja sig í spor annarra og dýpka skilning sinn á þeim menningarheimi sem hann býr í.
  • Líta á samfélagið út frá sjónarhorni kyns og kynferðis með gagnrýnum augum og geta tengt hugmyndir kynjafræðinnar við eigin veruleika.