Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt þar sem nemendur stunda hreyfingu við hæfi. Áhersla er lögð á að nemendur spreyti sig á fjölbreyttum æfingum sem byggja upp þol, styrk og liðleika. Áhersla er lögð á að nemendur átti sig á mikilvægi hreyfingar á andlega, líkamlega og félagslega líðan þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi almennrar heilsuræktar.
- Markmiðssetningu og uppbyggingu þjálfunaráætlunar.
- Mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.
- Mismunandi þjálfunaraðferðum til eflingar líkama og heilsu.
- Mikilvægi hreyfingar á andlega, félagslega og líkamlega heilsu og vellíðan.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Stunda æfingar sem auka þol, styrk og liðleika.
- Stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar.
- Nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í sinni þjálfun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Velja líkamsrækt við hæfi.
- Leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi eigin þjálfunar.
- Styrkja jákvæða sjálfsmynd og hugarfar með þátttöku í almennri líkams- og heilsurækt.
- Glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsuræktar.
Undanfari: Enginn.