ÍSLE3CC05 - Barnabókmenntir

Markmið áfangans er að nemendur öðlist góða þekkingu á sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabókmennta og máli og menningarheimi barna: máltöku, málþroska og ritun. Þeir þjálfist í lestri fræðigreina um efnið, öðlist leikni í að gera grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega og geti notað þekkingu sína og leikni til að segja/skrifa sögur á skilmerkilegan hátt.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þróunarsögu íslenskra barna- og unglingabóka.
  • Helstu bókmenntafræðilegu hugtökum sem tengjast barna- og unglingabókum.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina texta úr barna- og unglingbókum út frá bókmenntafræðilegum hugtökum og skilgreiningum.
  • Segja frá eigin reynslu í mæltu og rituðu máli.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta fjallað af skilningi og þekkingu um íslenskar barna- og unglingabækur.
  • Geta sett saman eigin skáldaðar sögur fyrir börn, munnlega og skriflega, í ljósi bókmenntafræðilegra hefða, hugtaka og skilgreininga.