ÍSLE3CB05 - Bókmenntir 20. aldar

Grunnþættir: Læsi, sköpun, lýðræði og mannréttindi. Í þessum áfanga er meginviðfangsefnið bókmenntir 20. aldar og þróun þeirra. Nemendur kynnast völdum verkum og hugarheimi þeirra með tengingu við samtímann. Nemendur lesa skáldsögur og kryfja eina ljóðabók ásamt öðru efni sem sem er við hæfi hverju sinni.Nemendur fá þjálfun í ýmiss konar ritun.. Nemendur fá tækifæri til að tjá sig um viðfangsefni áfangans, bæði í ræðu og riti. Nemendur æfast í tjáningu með því að flytja eigin texta og annarra, endursegja efni og halda kynningar. Einnig þjálfast nemendur í fjölbreyttri málnotkun. Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Ritgerðasmíð, heimildavinnu og reglum um frágang texta.
  • Helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti.
  • Mismunandi tegundum bókmennta, nytjatexta og málsniði, stefnum í íslenskum bókmenntum og helstu bókmenntahugtökum.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skrifa heimildaritgerð.
  • Ganga frá ritsmíðum skv. viðteknum venjum.
  • Nýta sér texta á gagnrýninn hátt.
  • Nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða.
  • Flytja af öryggi vel byggða ræðu eða kynningu.
  • Lesa forna og nýja texta sér til gagns og gamans.
  • Beita skýru og blæbrigðaríku og viðeigandi máli í ræðu og riti.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrifa skýran, vel uppbyggðan texta og geta valið sér ritstíl við hæfi.
  • Beita málinu á viðeigandi hátt í ræðu og riti við mismunandi aðstæður.
  • Geta komið skoðun sinni á framfæri í góðum texta á skilmerkilegan hátt.
  • Draga saman aðalatriði og beita gagnrýninni hugsun við lestur og úrvinnslu texta og átta sig á samfélagslegum skírskotunum.
  • Sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan.
  • Öðlast innsýn í samspil bókmennta og samtíma.