Lestur bókmennta af ýmsum toga er meginviðfangsefnið. Nemendur lesa 6 íslensk og þýdd bókmenntaverk og tjá sig um lestrarreynslu sína bæði munnlega og skriflega.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Að hægt sé að lesa skáldsögur af ýmsum toga sér til ánægju.
- Einkennum ólíkra höfunda og skáldsagnagerða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Tjá sig í ræðu og riti um skáldsögur af ýmsum toga.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Lesa sér til ángæju ólíkar skádsögur frá ýmsum menningarsvæðum sem er metið með viðtölum og skriflegum verkefnum.
- Leggja mat á mismunandi skáldsögur, mynda sér skoðanir á þeim og koma þeim frá sér á skýran og greinargóðar hátt sem er metið með viðtölum og skriflegum verkefnum.
- Skila og túlka samfélagslega skírskotun bókmennta sem er metið með viðtölum og skriflegum verkefnum.
- Sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Undanfari: ÍSLE1AA00.