ÍSLE2BA05 - Ritun og tjáning, undirstöðuatriði

Grunnþættir: Læsi, lýðræði og mannréttindi. Í þessum áfanga er lögð áhersla á læsi, ritun, tjáningu, sköpun og málnotkun, lestur mismunandi texta s.s. blaðagreina, ljóða, skáld- og smásagna og fjölbreytta úrvinnslu. Nemendur skiptast á skoðunum, rökræða og tjá sig jafnt munnlega sem skriflega. Lögð er áhersla á lesefni sem eykur orðaforða og glæðir málvitund og unnið með málsnið og málnotkun. Nemendur þjálfist í ritun texta af ýmsu tagi með áherslu á byggingu og frágang ritaðs máls, að nota fjölbreytt orðalag og æfi sig í notkun hjálpargagna. Nemendur kynnist grunnhugtökum bókmenntafræðinnar, myndmáli og bragfræði, þjálfist í beitingu þeirra við greiningu, túlkun og sköpun texta. Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hugtökum og reglum sem gilda um ritsmíðar.
  • Ýmiss konar orða - og handbókum og gagnlegum vefsíðum um mál og málnotkun.
  • Orðaforða sem nægir til að skilja íslenskt nútímamál.
  • Mismunandi tegundum bókmennta og grunnhugtökum bókmenntafræði.
  • Mismunandi tegundum texta og málsniði.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða.
  • Kynna verkefni sín munnlega.
  • Nota blæbrigðaríkt og viðeigandi mál í ræðu og riti.
  • Lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk og nytjatexta og fjalla um efni þeirra.
  • Rita rökfærsluritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Auka og styrkja eigin orðaforða og málhæfni t.d. með því að nýta sér hjálpargögn.
  • Taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdarfærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.
  • Skrifa ritgerð þar sem hann kemur skoðunum sínum á framfæri á greinargóðan hátt.
  • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið.
  • Lesa texta, greina þá og túlka út frá hugtökum bókmenntafræðinnar.