ÍSLB1FB00 - Íslenska á framhaldsskólabrú II

Í þessum áfanga er lögð áhersla á læsi, ritun, tjáningu, sköpun og málnotkun. Nemendur hvattir til að lesa sér til ánægju og sjálfstraust þeirra eflt. Lögð er áhersla á lesefni sem vekur áhuga og annað efni svo sem kvikmyndir, sjónvarpsþætti auk teiknmynda og myndasagna. Nemendur þjálfist í ritun texta af ýmsu tagi og æfi sig í notkun hjálpargagna við ritun. Frumkvæði, ábyrgð og sjástæð vinnubrögð höfð að leiðarljósi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu reglum sem nýtast í tal og ritmáli.
  • Orðaforða umfram það sem tíðkast í talmáli.
  • Mismunandi lestraraðferðum.
  • Nokkrum tegundum bókmennta og nytjatexta.
  • Ýmiss konar hjálpargögnum og ganglegum heimasíðum um mál og málnotkun.
  • Helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir og aðrar listgreinar.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skrifa fjölbreyttan texta í samfelldu máli með skýrri framsetningu.
  • Notkun viðeigandi hjálpargagna við frágang ritsmíða.
  • Blæbrigðaríku og viðeigandi máli í ræðu og riti.
  • Draga saman aðalatriði úr ýmsu efni og leita sér upplýsinga og nýta sér þær til gangs.
  • Taka saman og flytja stuttar endursagnir, lýsingar og kynningar á afmörkuðu efni.
  • Lesa sér til gangs og gamans.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Semja stutta texta með viðeigandi málfari.
  • Bæta einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar.
  • Halda uppi samræðum og rökstyðja eigin skoðanir á málefnalegan hátt.
  • Túlka og tjá sig um mismunandi efni.
  • Auka og styrkja eigin orðaforða og málhæfni t.d. með því að nýta sér hjálpargögn.
  • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið.

Undanfari: ÍSLA1FB00.