FJÁR2BA05 - Fjármálalæsi

Í áfanganum er farið í helstu grunnatriði er varða fjármál einstaklinga í íslensku þjóðfélagi. Þar sem fjármál eru hluti af daglegu lífi flestra er mikilvægt að læra og þekkja helstu hugtök þeirra og skilja hvað það er sem mestu máli skiptir þegar fjárhagslegar ákvarðanir eru teknar. Einstaklingar verða samkvæmt lögum fjárráða 18 ára. Þá skiptir máli að vera læs á fjármál. Fjármálalæsi byggir á þekkingu, viðhorfum og hegðun og snýst um að geta tekið siðferðislega, upplýstar og meðvitaðar ákvarðanir í fjármálum til lengri og skemmri tíma. Fjármálalæsi getur skipt sköpun. Það eflir og eykur þekkingu, hæfni og tiltrú fólks á sjálft sig og hvetur það til að taka stjórn á eigin lífi og skjóta traustum stoðum undir öruggari framtíð. Markmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu á fjármálum sem nýtist í daglegu lífi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Heimilisbókhaldi.
  • Sköttum.
  • Vöxtum.
  • Verðbólgu.
  • Sparnaði og fjárfestingum.
  • Lánum og skuldum.
  • Gjaldeyri.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Gera greiðsluáætlanir.
  • Gera vaxtareikninga.
  • Reikna verðbólgu.
  • Gera lánaútreikninga.
  • Reikna núvirði og framtíðarvirði.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hafa yfirsýn og stjórn á sínum fjármálum.
  • Hafa skilning og stjórn til að geta reiknað út hagkvæmustu fjárfestingakosti.
  • Geta valið á milli mismundandi lánsforma.
  • Geta nýtt sér upplýsingar er varða fjármál og efnahagsmál.