FÉLA3CC05 - Afbrotafræði

Afbrotafræði er ein af undirgreinum félagsfræðinnar og styðst við aðferðir félagsvísindanna til að rannsaka frávik og afbrot og viðbrögð samfélaga við þeim. Í þessum áfanga er farið í kenningar og sjónarhorn afbrotafræðinnar. Skoðaðar verða mismunandi tegundir afbrota og hvaða afleiðingar þær hafa. Unnið verður með spurningar eins og: Hvað eru afbrot? Eru sum afbrot verri en önnur? Af hverju fremur fólk afbrot? Er ástæða til að herða refsingar við afbrotum? Umfjöllun um afbrot, afbrotamenn og refsingar endurspegla siðferðishugmyndir og þjóðfélagsviðhorf. Lögð er áhersla á að nemendur fjalli á gagnrýninn hátt um álitamál sem tengjast afbrotum og frávikum og viðbrögðum við þeim.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mismunandi kenningum og sjónarhornum afbrotafræðinnar.
  • Helstu hugtökum afbrotafræðinnar.
  • Mismunandi tegundum frávika og afbrota.
  • Aðferðum sem samfélög beita og hafa beitt til að taka á afbrotum.
  • Sérstöðu afbrotafræðinnar og skyldleika hennar við aðrar greinar félagsvísinda.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita mismunandi kenningum og sjónarhornum afbrotafræðinnar.
  • Beita helstu hugtökum afbrotafræðinnar.
  • Greina mismunandi tegundir frávika og afbrota út frá ólíkum sjónarhornum.
  • Greina aðferðir sem samfélög beita til að koma í veg fyrir slíka hegðun og setja í fræðilegt samhengi.
  • Þekkja sérstöðu afbrotafræðinnar og skyldleika hennar við aðrar greinar félagsvísinda.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta lagt mat á upplýsingar um frávik, afbrot og viðbrögð samfélagsins við afbrotum.
  • Til að tengja umfjöllun fjölmiðla um afbrot við sjónarhorn afbrotafræðinnar (hugtök og kenningar).
  • Geta tjáð sig í ræðu og riti um samfélagsleg álitamál er tengjast afbrotum og viðbrögðum samfélagsins við þeim.
  • Vita hvað fels tí fræðilegum vinnubrögðum, kunna að leita að heimildum, meta gæði þeirra og vísa rétt í þær.