ENSB1FB00 - Enska 2 á framhaldsskólabraut

Í þessum áfanga eru undirstöðuatriði í ensku rifjuð upp til að nemandi geti tekist á við nám í faginu á framhaldsskólastigi. Unnið með markvissar málfræði- og orðaforðaæfingar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta, bæði bókmenntatexta og texta almenns eðlis. Skilningur á töluðu máli er þjálfaður með hlustun á rauntexta. Nemendur eru þjálfaðir í að tjá sig með viðeigandi orðalagi um almenn efni á ensku. Ritun er þjálfuð með fjölbreyttum æfingum þar sem áhersla er lögð á að skrifa texta á skipulagðan hátt og skipta í efnisgreinar.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnreglum í enskri málfræði.
  • Grunnorðaforða (upp í 2000 orð miðað við Word Frequency Lists).
  • Almennum rauntextum og einföldum bókmenntatextum.
  • Almennum rauntexta í útvarpi og sjónvarpi.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun.
  • Skrifa samfelldan texta og skipta eigin texta í viðeigandi málsgreinar.
  • Tjá sig um almenn málefni með viðeigandi orðalagi, munnlega og skriflega.
  • Lesa almenna rauntexta og einfalda bókmenntatexta.
  • Byggja upp og bæta við sinn orðaforða með mismunandi aðferðum.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Vinna á fjölbreyttan hátt með almenna rauntexta og einfalda bókmenntatexta.
  • Nýta grunnorðaforða í tal- og ritmáli.
  • Taka þátt í almennri umræðu á ensku.
  • Geta sjálfstætt aukið orðaforða sinn.