DANB1FB00 - Danska á framhaldsskólabrú II

Þetta er grunnáfangi 2 í dönsku. Orðaforðinn er aðeins flóknari en í áfanganum á undan. Farið verður meira í undantekningar í málfræði. Nemendur æfa sig í málfræði og nota hana í ritun. Færniþættirnir fjórir verða þjálfaðir áfram með efni sem hentar nemendum á A1 og leitast verður við að þyngja efnið aðeins. Nemendur lesa lengri texta sem þó eru á auðveldu máli. Þeir hlusta á efni um kunnuglega hluti og skrá athugasemdir hjá sér. Nemendur rita lengri texta og þjálfast enn betur í að nota orðabækur sér til stuðnings. Þeir segja frá efni sem þeim er tengt eða er kunnuglegt og þjálfast líka í samræðum um einfalt efni á dönsku.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
  • Grunnreglum í danskri málfræði auk algengustu undantekninga.
  • Hvernig netorðabækur nýtast honum í námi.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa einfalda texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni.
  • Skilja innihald talaðs máls um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega.
  • Taka undirbúinn þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir.
  • Skrifa samfelldan texta um efni sem hann hefur kynnt sér eða hefur áhuga á.
  • Fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál og beita réttri málfræði eftir bestu getu.
  • Nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli ef talað er skýrt og áheyrilega.
  • Fylgjast með frásögnum í fjölmiðlum ef efnið er áhugavert.
  • Lesa stuttar tímarits- eða blaðagreinar.
  • Tjá sig munnlega um efni sem honum finnst áhugavert og hefur undirbúið sig fyrir.
  • Skrifa stutta samantekt um málefni sem hann hefur kynnt sér.

Undanfari: DANA1FB00.