DANA1FB00 - Danska á framhaldsskólabrú I

Þetta er grunnáfangi 1 í dönsku. Farið er í einfaldan orðaforða til að byrja með. Nemendur læra nýjan og einfaldan orðaforða. Nemendur læra eða rifja upp helstu málfræðireglur nafnorða, sagnorða og lýsingarorða. Færniþættirnir fjórir; hlustun, lestur, ritun og tal, eru þjálfaðir með því t.d. að lesa létta texta, hlusta á danskt efni á netinu, skrifa stutt ritunarverkefni og segja frá áhugamálum sínum. Efni áfangans er í samræmi við A1 í sjálfsmatsramma Evrópsku tungumálamöppunnar.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
  • Grunnreglum í danskri málfræði.
  • Hvernig netorðabækur nýtast honum í námi.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja innihald talaðs mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega.
  • Lesa einfalda texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni.
  • Segja frá efni sem hann hefur undirbúið, þekkir eða hefur áhuga á og notast við hjálpargögn.
  • Skrifa stuttan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á.
  • Fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál.
  • Nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Fylgjast með sjónvarpsþáttum ef efnið er áhugavert.
  • Tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum.
  • Tjá sig munnlega um efni sem honum finnst áhugavert og hefur undirbúið sig fyrir.
  • Skrifa um hugðarefni sín og áhugamál.

Undanfari: C, D og stjörnumerkt úr grunnskóla.